Gustur dömupeysa er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með tvöföldu perluprjóni frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. Mynstrið heldur lögun sinni í gegnum alla flíkina.
Stærðir & mál
Gustur dömupeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 10 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 106 cm skaltu prjóna stærð L (114 cm).
Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 85-90 (90-95) 95-100 (100-110) 110-115 (115-125) 125-132 cm.
Stærðir: XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL
Ummál: 95 (99) 104 (114) 120 (129) 137 cm
Lengd: 50 (51) 53 (56) 58 (60) 62.5 cm
Prjónfesta: 19 lykkjur x 32 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 5 mm prjóna
Prjónar: 5 mm og 4 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar.
Tillaga að garni:
#1: 1 þráður 450 (550) 600 (700) 800 (850) 950 g Alpakka Ull frá Sandnes Garn (50g = 100m)
#2: 1 þráður 450 (550) 600 (700) 800 (850) 950 g Léttlopi frá Lopa (50g = 100m)
#3: 1 þráður 350 (400) 400 (500) 550 (600) 650 g Scout frá Kelbourne Woolens (100g = 250m)
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón!
Peysan á myndinni er prjónuð úr Scout (043 - Stone Heather).