Þessi uppskrift er á íslensku.
Blómstra barnapeysa er einstaklega falleg, hneppt barnapeysa með pífum í ermum.
Peysan er prjónuð fram & til baka, að ofan frá og niður. Fyrst er peysan prjónuð öll í gegn, síðan tekið upp lykkjur fyrir pífum í ermum & pífur prjónaðar. Að lokum eru kantlykkjur teknar upp & kantar prjónaðir.
Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára
Ummál: 56 (60) 63 (67) 70 cm
Prjónfesta: 25 lykkjur x 33 umferðir = 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 3
Prjónar: 3 mm , 60 cm hringprjónar og sokkaprjónar.
Tillaga að garni:
#1: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 g Babyull Lanett frá Sandnes (50g = 175m)
#2: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 g Baby Merino frá Drops (50g = 175m)
Erfiðleikastig: 2 af 5.
Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.
Hönnuður: Jóhanna Bríet Helgadóttir
email: johannabriet@hotmail.com
IG: @knitbybriet