Þessi uppskrift er á íslensku.
Berjalyng barnapeysa er klassísk, sparileg barnapeysa með fallegu gatamynstri. Peysan er prjónuð í hring, að ofan frá og niður.
Stærðir: 6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára (7-8 ára) 9-10 ára (11-12 ára)
Ummál: 51 (55) 58 (62) 65 (71) 75 (79) cm
Prjónfesta: 20 lykkjur = 10 cm í sléttu prjóni á 4.00 mm prjóna
Prjónar: 4.00 mm , 60 cm hringprjónar og sokkaprjónar.
Tillaga að garni:
#1: 1 þráður 150 (200) 200 (250) 250 (300) 350 (350) g Double Sunday frá Sandnes (50g = 108m)
Erfiðleikastig: 3 af 5.
Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.
Hönnuður: Jóhanna Bríet Helgadóttir
email: johannabriet@hotmail.com
IG: @knitbybriet