Blómstra barnapeysa

knitbybriet

Blómstra barnapeysa

Regular price 1.050 kr
Unit price  per 

Þessi uppskrift er á íslensku.

Blómstra barnapeysa er einstaklega falleg, hneppt barnapeysa með pífum í ermum.
Peysan er prjónuð fram & til baka, að ofan frá og niður. Fyrst er peysan prjónuð öll í gegn, síðan tekið upp lykkjur fyrir pífum í ermum & pífur prjónaðar. Að lokum eru kantlykkjur teknar upp & kantar prjónaðir.

Stærðir:                    6-12 mán (1 árs) 2 ára (3-4 ára) 5-6 ára

Ummál:                    56 (60) 63 (67) 70 cm

Prjónfesta:               25 lykkjur x 33 umferðir = 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 3

Prjónar:                    3 mm , 60 cm hringprjónar og sokkaprjónar.

Tillaga að garni:    

#1: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 g Babyull Lanett frá Sandnes (50g = 175m)        

#2: 1 þráður 150 (150) 200 (200) 250 g Baby Merino frá Drops (50g = 175m)              

Erfiðleikastig:                2 af 5.

Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.


Hönnuður: Jóhanna Bríet Helgadóttir
email: johannabriet@hotmail.com
IG: @knitbybriet