Gustur dömupeysa
Gustur dömupeysa
Gustur dömupeysa
Gustur dömupeysa

Bello Knit

Gustur dömupeysa

Regular price 1.150 kr
Unit price  per 

Þessi uppskrift er á íslensku.

Gustur dömupeysa er prjónuð að ofan frá og niður svo ekkert þarf að sauma saman. Þú byrjar sem sagt að prjóna stroff í hálsmáli, síðan berustykkið, svo bolinn og að lokum ermarnar. Peysan er prjónuð með tvöföldu perluprjóni frá toppi berustykkis alla leið niður. Allt stroff í peysunni er 1x1 stroff. Mynstrið heldur lögun sinni í gegnum alla flíkina.

Stærðir & mál

Gustur dömupeysa er hönnuð með það í huga að hafa u.þ.b. 10 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið yfir brjóstkassann 106 cm skaltu prjóna stærð L (114 cm).

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 85-90 (90-95) 95-100 (100-110) 110-115 (115-125) 125-132 cm.

Stærðir:                    XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál:                    95 (99) 104 (114) 120 (129) 137 cm

Lengd:                       50 (51) 53 (56) 58 (60) 62.5 cm

Prjónfesta:               19 lykkjur x 32 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 5 mm prjóna

Prjónar:                    5 mm og 4 mm, 40, 80 og/eða 100 cm hringprjónar.

Tillaga að garni:    

#1: 1 þráður 450 (550) 600 (700) 800 (850) 950 g Alpakka Ull frá Sandnes Garn (50g = 100m)

#2: 1 þráður 450 (550) 600 (700) 800 (850) 950 g Léttlopi frá Lopa (50g = 100m)

#3: 1 þráður 350 (400) 400 (500) 550 (600) 650 g Scout frá Kelbourne Woolens (100g = 250m)

Erfiðleikastig:                2 af 5.

Hentar vel byrjendum í prjóni sem vilja prufa mynsturprjón! 


Peysan á myndinni er prjónuð úr Scout (043 - Stone Heather).

Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.

Myndbönd notuð í þessari uppskrift: