Dimma dömupeysa
Dimma dömupeysa
Dimma dömupeysa
Dimma dömupeysa
Dimma dömupeysa

Bello Knit

Dimma dömupeysa

Regular price 1.150 kr
Unit price  per 

Þessi uppskrift er á íslensku.

Peysan Dimma er klassísk peysa með stórum rúllukraga. Peysan er prjónuð að ofan frá & niður, fyrst fram og til baka, síðan í hring. Mynstrið í peysunni er prjónað í öfugu hálfklukkuprjóni en stroff neðst á ermum og á bol í 1x1 stroffprjóni.  

Fyrst er hálft bakstykkið prjónað fram & til baka, frá hnakka að handvegi. Því næst eru teknar upp lykkjur sitt hvoru megin við háls, hálsmálið mótað & hálft efra framstykki prjónað fram & til baka að handvegi. Því næst er búkurinn sameinaður og prjónaður í hring. Lykkjur eru teknar upp fyrir ermum og prjónað í hring frá handvegi að úlnlið. Að lokum eru teknar upp lykkjur fyrir rúllukraga. Ekkert þarf að sauma saman.

Stærðir & mál

Peysan Dimma er hönnuð með það í huga að hafa um 15-20 cm slaka. Ummálið er gefið upp sem ummál peysunnar. Því mætti segja að ef þú mælir ummálið þitt yfir brjóstkassann 94 cm skaltu prjóna stærð M (113 cm). Peysan er hönnuð sem passlega víð peysa með stórum rúllukraga.

Stærðirnar XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL eru hannaðar til að passa fyrir brjóstmál 80-85 (86-92) 93-100 (101-112) 113-119 (120-125) 125-133 cm

Stærðir:                    XS (S) M (L) XL (2XL) 3XL

Ummál:                    100 (107) 113 (127) 133 (140) 150 cm

Lengd:                       54 (55) 57 (60) 62 (64) 65 cm

Prjónfesta:               12 lykkjur x 30 umferðir = 10 x 10 cm í hálfklukkuprjóni á 6.00 mm prjóna
(Vinsamlegast athugið að 30 umferðir í hálfklukkuprjóni eru taldar sem 15 umf slétt prjón)
18 lykkjur x 25 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á 5.50 mm prjóna

Prjónar:                    6.00 mm & 5.50 mm, 40, 60, 80 og/eða 100 cm hringprjónar  og/eða sokkaprjónar.

Tillaga að garni:    

#1: 1 þráður 400 (450) 450 (500) 550 (600) 600 g Heavy Merino frá Knitting for Olive (50g = 125m) saman með 1 þráður 100 (100) 125 (125) 150 (150) 150 g Soft Silk Mohair frá Knitting for Olive (25g = 225m).

#2: 2 þræðir 450 (500) 550 (600) 650 (700) 750 g Plötulopi frá Ístex (100g = 300m)

Erfiðleikastig:                5 af 5.

Peysan á myndinni er prjónuð úr Heavy Merino (Nordstrand / Nordic Beach) og Soft Silk Mohair (Havre / Oat).

Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.

Myndbönd notuð í þessari uppskrift: