Þessi uppskrift er á íslensku.
Skín barnahúfa er falleg barnahúfa með pífu fyrir ofan stroff.
Húfan er prjónuð í hring með sléttu prjóni. Í lokin er pífa gerð fyrir ofan stroff.
Stærðir: 12-18 mán (18-24 mán) 2-4 ára (4-6 ára)
Ummál: 38 (38) 40 (44) cm
Prjónfesta: 26 lykkjur = 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 3
Prjónar: 3 mm , 40 cm hringprjónar og/eða sokkaprjónar.
Tillaga að garni:
#1: 1 þráður 50 (50) 50 (50) g Tynn Merino ull frá Sandnes Garn (50g = 175m) eða annað sambærilegt garn.
Erfiðleikastig: 1 af 5.
Bleika húfan á myndinni er prjónuð úr Klompelompe Tynn Merino ull frá Sandnes (4344 - duftbleikur).
Uppskriftin sendist á PDF-formi í tölvupósti.
Hönnuður: Jóhanna Bríet Helgadóttir
email: johannabriet@hotmail.com
IG: @knitbybriet